Úrslit

Fylgjast má með stöðu keppninnar á heimasíðu tímatöku.net. Til að fylgjast með stöðu hvers flokks þarf að opna viðeigandi hlekk á heimasíðunni.

Á hverri drykkjarstöð verða millitímatökutæki sem gefa upp millitíma.

Strava er ekki hægt að nýta sem gildan keppnistíma.

Verðlauna-afhending

Verðlaunaafhendingin verður í Logalandi kl. 18 fyrir alla flokka. Allir eru velkomnir að koma og vera með okkur og fagna.

Eftir verðlaunaafhendinguna og fram eftir kvöldi verður opið hús og partý og allir velkomnir að koma og njóta kvöldsins með okkur.