Fimmtudaginn 8. ágúst

Áður en haldið er á ráslínuna þarf að sækja keppnisgögn. Hverjum pakka fylgir:

  • Keppnisnúmer með tímatökuflögu
  • Bennsli til að festa keppnisnúmerið.
Hægt er að sækja keppnisgögn á milli kl. 16:00-18:00 þann 8. ágúst í reiðhjólaversluninni TRI að Suðurlandsbraut.

Aðrir tímar

Ef þú nærð ekki að koma og sækja keppnisgögnin þann 8. ágúst geturðu nálgast gögnin þín á eftirfarandi tímum.

  • Föstudaginn 9. ágúst á milli kl. 19:00 og 22:00 í Logalandi.
  • Á skilgreindum tíma fyrir ræsingu, sjá tímatöflu, í Logalandi.