Brautir og fyrsta hjálp

Brautir

Allir keppendur verða að vera með sína braut vistaða í snjallsíma eða GPS hjólatölvu. Grefillinn er keppni þar sem keppendur verða að geta treyst á sjálfan sig þar sem það er á þeirra ábyrgð að rata um brautina. Á völdum stöðum verða örvar til að vísa veginn en ekki er hægt að ganga að þeim vísum í allri brautinni.

Vinsamlegast passið upp á að hala niður leiðinni af Komoot síðu Grefilsins áður en lagt er af stað. Leiðirnar má finna á eftirfarandi hlekkjum.

Leiðbeiningar um hvernig á að sækja Komoot leið og vista á tækið þitt má finna hér: Use Komoot on Your GPS Computer

Fyrsta hjálp

Keppnishaldarar eru með sjálfboðaliða í brautinni, við drykkjarstöðvar, sem aðstoða keppendur eftir fremsta megni.

Á Grjóthálsi verður björgunarsveit til taks ef upp koma slys.

Keppendur eru beðnir um að vista eftirfarandi númer mótsstjóra í símanum hjá sér:

  • Andri Már -> +354 859 3215
  • María Sæm -> +354 864 9640

Það er von okkar að það komi ekki upp slys en þau gera víst aldrei boð á undan sér. Í neyðartilvikum skal hringja í 112 og síðan mótsstjóra.

Drykkjarstöðvar og tímamörk

Drykkjarstöðvar

Á drykkjarstöðvum verða vörur frá styrktaraðilum. Við hvetjum keppendur til þess að vera með nægilegt magn af næringu á sér, að lágmarki 500 cal, eins og talið er upp í keppnishandbók þar sem ekki er hægt að tryggja nægilegt magn af næringu á drykkjarstöðvum.

Á drykkjarstöðvum verða amk eftirfarandi:

  • Batterí orkudrykkur
  • Gatorate 
  • Pepsi
  • Vatn
  • Bananar
  • Snickers

Vsml. athugið að við ábyrgjumst ekki að það verði nægilegt magn af næringu á hverri drykkjarstöð fyrir alla. Reynið því að vera með nægilega mikið magn af næringu á ykkur til að klára keppnina.

200 km

Drykkjarstöð 1

Tímamörk 1

  • Staðsetning: Kaldidalur
  • Km: 64 ca.
  • Tímamörk: @ 11:20

Drykkjarstöð 2

Tímamörk 2

  • Staðsetning: Húsafell
  • Km: 103 ca.
  • Tímamörk: @ 14:00

Drykkjarstöð 3

Tímamörk 3

  • Staðsetning: Sigmundarstaðir
  • Km: 150 ca.
  • Tímamörk: @ 17:00

Drykkjarstöð 4

Tímamörk 4

  • Staðsetning: Varmaland
  • Km:  180 approx.
  • Tímamörk: @ 19:00

Endamark

Tímamörk 5

  • Staðsetning: Logaland
  • Km: 199 ca.
  • Tímamörk: @ 20:00

Routes are subject to change.

100 km

Drykkjarstöð 1

Tímamörk 1

  • Staðsetning: Sigmundarstaðir
  • Km: 50 ca.
  • Tímamörk: @ 13:30

Drykkjarstöð 2

Tímamörk 2

  • Staðsetning: Varmaland
  • Km: 78 ca.
  • Tímamörk: @ 15:30

Endamark

Tímamörk 5

  • Staðsetning: Logaland
  • Km: 98 ca.
  • Tímamörk: @ 20:00

Routes are subject to change.

45 km

  • Það eru engar drykkjarstöðvar á 45 km leiðinni.

Endamark

Tímamörk

  • Staðsetning: Logaland
  • Km: 45 ca.
  • Tímamörk: @ 20:00

Routes are subject to change.

Reglur, næring og búnaður

Reglur

Keppendur samþykkja að fylgja í einu og öllu þeim reglum sem um keppnina gilda og gefnar hafa verið út á þessari vefsíðu. Jafnframt skulu keppendur framfylgja öllum leiðbeiningum frá keppnishaldra sem og þeim sjálfboðaliðum sem vinna á vegum keppnishaldara.

Keppendum bera að kynna sér reglurnar áður en þeir stilla sér upp á ráslínu.

Reglurnar má finna hér. Reglurnar eru eingöngu á ensku.

Næring og búnaður

Keppendur verða að ver með eftirfarandi á sér í keppninni eins og vísað er í reglum:

  • GPS tæki með vistaða hjólaleið.
  • GSM farsíma í vatnsþéttum poka.
  • 1,5 l af vatni að lágmarki.
  • Vara slöngu, smurolíu, verkfæri og pumpu.
  • 500 cal af næringu.
  • Keppnisnúmer og tímatökuflögu

Veðrið á Íslandi getur verið óútreiknanlegt. Klæðið ykkur því eftir veðri en verið ávalt viðbúin því að veður getur versnað á skömmumtíma.

Sástu samantektina frá okkur á fatnaði frá TRI og Castelli?
-> Kíktu hér <-