Brautin
Brautir og fyrsta hjálp
Brautir
Allir keppendur verða að vera með sína braut vistaða í snjallsíma eða GPS hjólatölvu. Grefillinn er keppni þar sem keppendur verða að geta treyst á sjálfan sig þar sem það er á þeirra ábyrgð að rata um brautina. Á völdum stöðum verða örvar til að vísa veginn en ekki er hægt að ganga að þeim vísum í allri brautinni.
Vinsamlegast passið upp á að hala niður leiðinni af Komoot síðu Grefilsins áður en lagt er af stað. Leiðirnar má finna á eftirfarandi hlekkjum.
Leiðbeiningar um hvernig á að sækja Komoot leið og vista á tækið þitt má finna hér: Use Komoot on Your GPS Computer
Fyrsta hjálp
Keppnishaldarar eru með sjálfboðaliða í brautinni, við drykkjarstöðvar, sem aðstoða keppendur eftir fremsta megni.
Á Grjóthálsi verður björgunarsveit til taks ef upp koma slys.
Keppendur eru beðnir um að vista eftirfarandi númer mótsstjóra í símanum hjá sér:
- Andri Már -> +354 859 3215
- María Sæm -> +354 864 9640
Það er von okkar að það komi ekki upp slys en þau gera víst aldrei boð á undan sér. Í neyðartilvikum skal hringja í 112 og síðan mótsstjóra.
Drykkjarstöðvar og tímamörk
Drykkjarstöðvar
Á drykkjarstöðvum verða vörur frá styrktaraðilum. Við hvetjum keppendur til þess að vera með nægilegt magn af næringu á sér, að lágmarki 500 cal, eins og talið er upp í keppnishandbók þar sem ekki er hægt að tryggja nægilegt magn af næringu á drykkjarstöðvum.
Á drykkjarstöðvum verða amk eftirfarandi:
- Batterí orkudrykkur
- Gatorate
- Pepsi
- Vatn
- Bananar
- Snickers
Vsml. athugið að við ábyrgjumst ekki að það verði nægilegt magn af næringu á hverri drykkjarstöð fyrir alla. Reynið því að vera með nægilega mikið magn af næringu á ykkur til að klára keppnina.
200 km
Drykkjarstöð 1
Tímamörk 1
- Staðsetning: Kaldidalur
- Km: 64 ca.
- Tímamörk: @ 11:20
Drykkjarstöð 2
Tímamörk 2
- Staðsetning: Húsafell
- Km: 103 ca.
- Tímamörk: @ 14:00
Drykkjarstöð 3
Tímamörk 3
- Staðsetning: Sigmundarstaðir
- Km: 150 ca.
- Tímamörk: @ 17:00
Drykkjarstöð 4
Tímamörk 4
- Staðsetning: Varmaland
- Km: 180 approx.
- Tímamörk: @ 19:00
Endamark
Tímamörk 5
- Staðsetning: Logaland
- Km: 199 ca.
- Tímamörk: @ 20:00
Routes are subject to change.
100 km
Drykkjarstöð 1
Tímamörk 1
- Staðsetning: Sigmundarstaðir
- Km: 50 ca.
- Tímamörk: @ 13:30
Drykkjarstöð 2
Tímamörk 2
- Staðsetning: Varmaland
- Km: 78 ca.
- Tímamörk: @ 15:30
Endamark
Tímamörk 5
- Staðsetning: Logaland
- Km: 98 ca.
- Tímamörk: @ 20:00
Routes are subject to change.
45 km
- Það eru engar drykkjarstöðvar á 45 km leiðinni.
Endamark
Tímamörk
- Staðsetning: Logaland
- Km: 45 ca.
- Tímamörk: @ 20:00
Routes are subject to change.
Reglur, næring og búnaður
Reglur
Keppendur samþykkja að fylgja í einu og öllu þeim reglum sem um keppnina gilda og gefnar hafa verið út á þessari vefsíðu. Jafnframt skulu keppendur framfylgja öllum leiðbeiningum frá keppnishaldra sem og þeim sjálfboðaliðum sem vinna á vegum keppnishaldara.
Keppendum bera að kynna sér reglurnar áður en þeir stilla sér upp á ráslínu.
Næring og búnaður
Keppendur verða að ver með eftirfarandi á sér í keppninni eins og vísað er í reglum:
- GPS tæki með vistaða hjólaleið.
- GSM farsíma í vatnsþéttum poka.
- 1,5 l af vatni að lágmarki.
- Vara slöngu, smurolíu, verkfæri og pumpu.
- 500 cal af næringu.
- Keppnisnúmer og tímatökuflögu
Veðrið á Íslandi getur verið óútreiknanlegt. Klæðið ykkur því eftir veðri en verið ávalt viðbúin því að veður getur versnað á skömmumtíma.
Sástu samantektina frá okkur á fatnaði frá TRI og Castelli?
-> Kíktu hér <-