MALARHJÓLREIÐAR Í BORGARFIRÐI

9. ágúst 2025

Skráning opnar laugardaginn 22. febrúar kl. 12:00.

Grefillinn

Hvað sagðirðu?

20230812_083351

Orðið „grefillinn“ vísar til verkfærisins haka og táknar malarvegina sem hráslagalegt hálendisveðrið og jöklarnir hafa myndað. Að auki er orðatiltækið „hver grefillinn“ skemmtileg upphrópun sem notuð er við svipuð tækifæri og „hvað í fjáranum“, hugsanlega eitthvað sem þátttakendur missa út úr sér þegar þeir sjá undursamlega náttúruna og stundum krefjandi vegi.

ARE you ready for your next journey?

UNLIMITED COLLECTION

viðburðurinn

Rásmark og endamark er í Logalandi, þjónustumiðstöð  keppninnar. 

207 km keppnin fer beint upp í Þverárhlíð þar sem þvælst verður yfir Kjarrá fyrir ofan Örnólfsdal, niður að Lindarhvoli og upp Norðurárdalinn, mögulega í mótvindi. Þá yfir Grjótháls og aftur í Þverárhlíð og yfir Þverá hjá Sigmundarstöðum. Þarna ættu flestir að vera orðnir vel blautir í fætur, en þar með lýkur vöðum.  

Næst er farið um Hvítársíðu, krókur um Tungu og upp Kaldadal sem er hálendisvegur. Smá grófur vegur, en stórkostlegt útsýni (ef það er ekki þoka) í eyðilegu umhverfi þar sem sést til Þórisjökuls, Eiríksjökuls og Langjökuls, já og til Oks sem er víst ekki lengur jökull. Hæsti punkturinn á Kaldadal er um 700 m.

Svo tekur við gott rúll niður Lundarreykjadal, með viðkomu um Flókadal og svo endað aftur í Logalandi.

Upplifðu kjarna íslenskrar náttúru

Krauma eru náttúrulaugar við Deildartunguhver, vatnsmesta hver í Evrópu.

Grefillinn er styrktur af Krauma.

Hver þarf malbik?

Ekki allir vegir standa jafnfætis.

Í raun eru sumir frekar grófir og torfarnir en þar á Nuroad frá Cube einmitt heima.

Blanda af cyclocross og götuhjóli er fullkomin blanda fyrir malarhjólreiðar.

Grefillinn er styrktur af Tri sem er umboðsaðili Cube á Íslandi.

Get notified

This website uses cookies

We use cookies to personalise content and ads, to provide social media features and to analyse our traffic. Privacy Policy